Velkomin!
Á þessari síðu er hægt að nálgast upplýsingar um afurðir sem við erum að selja hér í Stóru-Sandvík 5.
Öllum er velkomið að kíkja á okkur í sveitina til að versla við okkur en einnig er hægt að fá vörur sendar eftir pöntun.
Hægt er að hafa samband við Fjólu í síma 660-8038 eða á tölvupóstinn sandvikurrofur@gmail.com.

Um Okkur
Næring í rófum
Mikið magn af C-vítamínum er í gulrófum og þá sérstaklega í gulrófum sem eru ræktaðar norðarlega. Talið er að hitasveiflur og næturfrost sé ástæðan fyrir því að rófurnar eru c-vítamín ríkari en þær sem eru ræktaðar sunnarlega. Einnig spilar inní að meira er af dagsbirtu á norðurslóðum en gerist sunnar.
Aftur á móti er meira af beta-karótín í gulrófum sem ræktaðar eru í heitara loftslagi en þær sem eru ræktaðar í kaldara. Beta-karótín er andoxunarefni sem kemur í veg fyrir myndun skaðlegra sindurefna í frumum. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á af beta-karótín getur minnkað líkur á ákveðnum krabbameinum.
Gulrófur innihalda töluvert af trefjum, meira en flestir aðrir ávextir. Nokkur dæmi um góð áhrif trefja á líkamann:
-Trefjar hafa hemjandi áhrif á insúlín framleiðslu í líkamanum og dregur úr estrogenmagni í líkamanum. Þar af leiðandi stuðlar trefjarrík fæða t.d að minni líkum á brjóstarkabbameini.
- Trefjar stuðla líka að lækkun á blóðkólesteróls og minnkar því líkur á hjarta og æðasjúkdómum.
-Trefjarík fæða kemur meltingunni oft af stað.
Gulrófur eru mjög heppilegar fyrir fólk sem er t.d að reyna að grenna sig þar sem orkugildið í rófum er alveg sérstaklega lágt miða við aðrar fæðutegundir.
